Réttindi lögmannsstofa
Réttindi lögmannsstofa veitir einstaklingum og fyrirtækjum skýra og vandaða lögfræðiþjónustu, með áherslu á persónulega ráðgjöf, traust samskipti og faglega úrlausn mála.
Stofan er rekin af Grími Má Þórólfssyni, lögmanni með réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómstólum og Landsrétti.
Áhersla er lögð á að veita aðgengilega ráðgjöf, skýra réttarstöðu og vinna markvisst að næstu skrefum í hverju máli.
01
Hjúskaparréttur
Kaupmálar, skilnaðir, sambúðarsamningar og fjárskipti. Ákvörðun forsjár og lögheimilis.
Aðstoð í málum sem tengjast hjúskap og sambúð, svo sem gerð kaupmála og sambúðarsamninga, skilnaðarmálum og fjárskiptum. Þegar börn eiga í hlut er einnig veitt aðstoð við ákvörðun um forsjá og lögheimili. Lögð er áhersla á að réttarstaða hvers og eins sé skýr og að næstu skref liggi fyrir.
02
Forsjármál og umgengni
Samningar og ágreiningur um forsjá, lögheimili og umgengni við skilnað. Umgengnistálmanir.
Aðstoð við gerð samninga og úrlausn ágreinings um forsjá, lögheimili og umgengni við skilnað. Það nær einnig til umgengnistálmana. Lögð er áhersla á lausnir sem taka mið af hagsmunum barnsins.
03
Erfðamál
Ráðgjöf tengd erfðarétti, skipti á dánarbúum og gerð erfðaskráa.
Ráðgjöf um erfðarétt og aðstoð við skipti á dánarbúum. Einnig er veitt aðstoð við gerð erfðaskráa, svo að vilji erfðaskrárgjafa komi skýrt fram.
04
Sakamál
Verjendastörf og hagsmunagæsla fyrir brotaþola. Skaðabótamál vegna þvingunarráðstafa lögreglu.
Verjendastörf í sakamálum og hagsmunagæsla fyrir brotaþola. Einnig er tekið að sér skaðabótamál vegna þvingunarráðstafana lögreglu.
05
Slysamál
Umferðarslys, vinnuslys, frítímaslys, og önnur slysa- og skaðabótamál.
Aðstoð í slysa- og skaðabótamálum, til dæmis vegna umferðarslysa, vinnuslysa og frítímaslysa. Farið er yfir réttarstöðu viðkomandi og unnið markvisst að næstu skrefum í málinu.
06
Fasteignakaup og gallamál
Gerð kaupsamninga og afsala, leyndir gallar og saknæm háttsemi við sölu fasteigna.
Aðstoð við gerð kaupsamninga og afsala við fasteignakaup. Einnig er veitt ráðgjöf og aðstoð þegar leyndir gallar koma fram eða saknæm háttsemi hefur átt sér stað við sölu fasteigna.
07
Málflutningur
Málflutningur fyrir héraðsdómstólum og Landsrétti.
Grímur Már tekur að sér rekstur mála fyrir héraðsdómstólum og Landsrétti, fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Réttindi hans til málflutnings ná til beggja dómstiga.
08
Fyrirtækjaþjónusta
Starfsmannamál, skattamál, skaðabótamál og önnur ráðgjöf er snýr að fyrirtækjarekstri.
Ráðgjöf fyrir fyrirtæki í málum sem tengjast rekstrinum, svo sem starfsmannamálum, skattamálum og skaðabótamálum. Einnig er veitt önnur lögfræðileg ráðgjöf sem snýr að fyrirtækjarekstri.
Fyrirspurn
Senda fyrirspurn
Sendu fyrirspurn og haft verður samband eins fljótt og auðið er.
